    <language>is</language>
Múli
      <description>Litla fjölskyldan skellti sér í sveitina með frábærum vinum. Fórum austur, nánar tiltekið rétt hjá Djúpavogi, á sveitabæ sem heitir Múli, vorum þar í níu daga og nutum þess í botn. Það er fallegt þarna í kring og algjör paradís fyrir börnin sem og okkur fullorðna fólkið. Margt var brasað, farið í sund bæði á Djúpavogi og á Höfn farið í sveitaferðir inn í Getihellnadal og synt í Tröllatjörn :) Við höfum farið þessa ferð núna tvö ár í röð og erum svo spennt yfir því að það er komin hefð þar sem það verður farið aftur næstu ár :) </description>
Það er komið sumar :)
      <description>Hæ hæÞað eru komnar inn nýjar myndir :) njótið vel...</description>
3 ára gaur!
      <description>Halló hallóÉg er ekki sú duglegasta að uppfæra þessa síðu okkar, en það kemur nú fyrir :) Ég setti inn nokkrar myndir úr 3 ára afmælinu hans Alexanders Óla og skellti svo nokkrum myndum með sem voru teknar þegar ég fór í útsýnisflug yfir gosið á Fimmvörðuhálsi.Af okkur er annars allt gott að frétta. Alexander Óli er gullmoli sem verður bara yndislegri með hverjum deginum. Hann er orðinn svo stór að ég er ekki að átta mig á þessu stunum. Í mars fórum við með hann í smá aðgerð þar sem hann fékk rör í eyrun og það hefur hjálpað honum alveg rosalega. Hann er farinn að tala mun skírar og orðaforinn sprettur upp hjá honum. Það er svo gaman hvað það koma margir gullmolar hjá honum, eitt er víst að hann er mikið jólabarn sem talar stöðugt um að hann ætli að verða jólasveinninn þegar hann verður stór :)En jæja best að halda áfram að vinna, set inn betri fréttir við tækifæri</description>
Nokkrar myndir
      <description>Var að setja inn nokkrar myndir í albúm sem heitir November 2009</description>
Madríd 2009
      <description>Hæ hæ - Myndir frá Madríd  </description>
Fleiri myndi
      <description>hæ hæ...ég var að setja inn fleiri sumarmyndir  </description>
Sumar
      <description>Var að bæta við nokkrum nýjum myndum, endilega kíkið á þær :)</description>
Til hamingju Anna okkar
      <description>Já hún elskulega systir mín, Anna Lilja, átti afmæli á miðvikudaginn. Hún er eins og flestir vita stödd í Madríd að vinna sem au-per, læra spænsku og njóta þess að vera til. Við óskum henni innilega til hamingju með afmælið  Hún er búin að tuða og tuða í mér að setja myndir hér inn, ég er ekki alveg að standa mig nógu vel. Hér koma nokkrar Við fórum norður um páskana og að sjálfsögðu tóku við nokkrar myndir þar. Það var æðislegt að vera hjá ömmu, eins og alltaf. Við slöppuðum af, heimsóttum yndislegt fólk, fórum út að leika í sund og fleira. Það er alltaf jafn gott að komast borginni og í rólegheitin fyrir norðan í fallegasta firði landsins  en jæja það er best að fara að gera sig reddy fyrir vinnuna. Endilega kíkið á myndirnar, ég er svo búin að setja inn nýtt myndband og það eru fleiri væntanleg það gengur alltaf hálf illa að taka svona family photo </description>
      <description>Hæ hæ og halló :)  Nýjar myndir komnar inn, set inn fréttir fljótlega :)</description>
Nóg að gera
      <description>Hæ hæ og hóJæja ég var að klára að setja inn nokkrar nýjar myndir svo ég ákvað að skrifa smá blogg líkaÞað er sko búið að vera nóg að gera síðustu daga. Á mánudaginn síðasta byrjaði Alexander á leikaskóla! Já þetta var ekkert smá stór dagur fyrir hann og mig,,,,hehe. Fyrst vikan er alltaf róleg, þá er aðlögun og mér finnst mjög fínt að fara hægt í þetta. Ég ákvað að halda plássinu hjá dagmömmunni út vikuna svo að hann gæti farið til hennar eftir aðlögun á daginn. Mánudagurinn var bara smá heimsókn þar sem ég var með honum allan daginn. Leikskólinn heitir Hlíð og deildin hans heitir Álfahlíð Ég er alveg mjög ánægð með allt enn sem komið er. Fóstrurnar eru alveg frábærar og aðstaðan góð. Smá saman fór ég svo að skilja hann eftir, fyrst klukkutími, svo tveir tíma og svo endaði þetta með að hann var næstum fullan dag á föstudaginn. Aðlögunin gekk rosalega vel, hann fór aldrei að gráta þegar ég fór heldur vinkaði mér bara og sagði bæ bæ mamma. Ekkert smá dugleg og alveg ótrúlega stolt móðir sem gekk út. Fóstrurnar voru mjög duglega að hrósa honum og segja að hann sé roaslega duglegur og alveg greinilega mikil félagsvera. Hann veit heldur ekkert skemmtilegra en að leika sér með hópi barna. Ég hef fulla trú á að þetta eigi eftir að halda áfram að ganga svona vel því þessi litli strákur sem við eigum er algjör hetja Annars er bara allt gott að frétta, það er nóg að gera í vinnunni hjá mér sem er æði, ég elska líka vinnuna mín. Hversu gott er það þegar maður er að gera eitthvað sem maður hefur gaman af allan daginn og er að vinna með fólki sem er yndisleg  Á morgun ætla ég svo að skella mér í leikfimi eftir of langa pásu. Ætla að kíkja í tíma í World class laugum og hlakka mikið til að fá þetta aftur inní rútínuna mína, maður verður bara svo miklu orkumeiri, glaðari, hressari, ferskari.....já ég gæti endalaust talið upp.Af Kára okkar er allt gott að frétta. Hann er enn í Noregi og það gengur bara vel hjá honum. Hann er líka svo duglegur og ég veit að yfirmennirnir hans eru ekkert smá ánægðir með hann og vinnubrögðin hjá honum, Enda veit ég að hver sá sem fær Kára í vinnu getur sko verið ánægður því þar er á ferðinni fyrsta flokks smiður, sem hefur svo gaman að því sem hann er að gera og gerir það svooo vel  Það stóð til að Kári kæmi heim núna á föstudaginn en það þarf að öllum líkindum að fresta heimkomunni um viku þar sem það þarf að klára verkefnið sem þeir eru með á næstu tvem vikunum. Við Alexander vildum auðvita helst allaf hafa hann heima en auðvita verður þetta ekkert mál þar sem það er mikið að gera og hann verður kominn heim áður en við vitum af  Alexander finnst alltaf rosalega gaman að tala við pabba sinn í símann, segir hátt og skírt Halló Pabbi í hvaða síma sem hann kemst í. Svo þegar þeir feðgarnir eru að tala saman þá segir hann pabba sínum hvað hann er sterkur, sýnir honum bíla, duddur og dót í gegnum símann og svo auðvita gefur hann honum alltaf kossEn jæja ég læt þetta duga í bili...verið nú dugleg að kvitta þið sem kíkið hingað inn </description>
Nýtt ár :)
      <description>Hæ Hæ og Gleðilegt nýtt ár :)Jæja þá er heimilisfaðirinn farinn til Noregs og við Alexander tvö eftir heima. Það er svo tómlegt án hans þar sem hann er mikill gleðigjafi sem hressir okkur bæði alltaf við. Þessi ferð verður ekki eins löng og sú síðasta. Síðast var hann úti í tæplega 5 vikur en núna verður hann ekki nema 3 vikur. Planið er svo að hann fari alltaf út í 3 vikur í einu og kemur svo heim til okkar í 1 viku Við höfðum það alveg rosalega gott um jólin. Vorum hjá ömmu og afa í árbænum á aðfangadag og það var alveg yndislegt. Áttum svo róleg og góð áramót með ömmu og afa í mosó sem var líka alveg frábært.Nú er komið nýtt ár og ég er ein af þessum bjartsýnu. Held að byrjun ársins verði kannski svoldið erfið en svo fer þetta allt að lagast og það birtir til hjá okkur að öllu leiti  Við fórum í bíó á mánudaginn og sáum Yes man sem ég mæli sko með. Boðskapurinn er mjög góður í þessari mynd og á rosalega vel við núna. Jákvæð hugsun og jákvæðni smitar frá sér, ég trúi því allavega. Ef maður er jákvæður og reynir að gera gott úr hlutunum smitar það frá sér og maður uppsker eitthvað jákvætt og gott til baka  Ég fór með Alexander í klippingu á miðvikudaginn. Ákvað að prufa að fara á Stubbalubba sem er hárgreiðslustofa fyrir börn.  Mikið var ég ánægð með þessa ákvörðun mína. Stofan er alveg yndisleg, skemmtilegt starfsfólk, góð aðstaða (ævintýraland fyrir börn) og svo var ég rosalega ánægð með klippinguna. Alexander hafði líka gaman af þessu, sat alveg kjur í hermannajeppa stólnum sínum og á tímabili hélt ég að hann væri að sofna, held honum hafi fundist þetta svo þægilegt. Núna eru bara nokkrir daga í að litli kúturinn okkar byrji á leikskóla. Aðlögunin byrjar 19.janúar Leikskólinn sem hann fer á heitir Hlíð og er hér í mosó. Þetta er sami leikskóli og Lísa systir hans er á sem er auðvita frábært. Því ef ég þekki litlu dömuna á hún sko eftir að passa mjög vel upp á litla bróðir.Jæja ég læt þetta duga í bili og er nú alveg ákveðin í því að vera duglegri að blogga um daginn og veginn hér inni Vona bara að sem flestir kíki hingað inn og kvitti svo fyrir komuna</description>
      <description> EEEEEllllsku Kári VIð söknum þín  Elskum þig  og okkur hlakkar svooooooo mikið til að fá þig aftur heim </description>
Fréttir
      <description>Jæja ég held að það sé kominn tími á nýjar myndir og smá fréttir :) Alexander stækkar og stækkar, hann er á svo skemmtilegum aldri. Algjör prakkari og elskar að stríða mömmu sinni. Hann er voðalega mikill knúsu kall og hver sem kemur í heimsókn fer út aftur nokkrum knúsum og kossum ríkari. Við vorum svo heppin að fá úthlutað leikskólapláss fyrir Alexander, það er víst mjög sjaldæft hér í Mosó að börn komist inn fyrir 2 ára aldur en Alexander byrjar í í aðlögun í janúar. Okkur hlakkar öllum mkið til en til að byra með þá verður hann bara til 3 á leikskólanum og Sigrún amma hans ætlar að vera svo æðisleg að ná alltaf í hann. Kári var svo heppinn að fá vinnu í Noregi og er þar úti núna að smíða. Það er sko mikil hjálp í kreppunni að finna svona góða vinnu því það er sko ekki mikið að fá hér heima. Hann er svo duglegur og við alexander erum ekkert smá stolt af honum. Hann fór út 19.nov og kemur ekki heim fyrr en 21.des við mæðgin bíðum sko rosa spennt eftir að hann komi heim. Jólin verða sko yndisleg, María okkar kemur heim frá danmörku 17.des svo kemur Ágúst Már 19. des og svo síðastur en ekki síst Kári 21.des. Allt þetta yndislega fólk að koma heim og við gætum ekki verið spenntari. En jæja nóg af fréttum í bili, setti inn nýjar myndir svo endilega kíkið á þær </description>
Nýjar myndir
      <description>jæja þá, var að skella inn 2 nýjum albúmum og hver veit nema það bætist eitt við. Endilega skoðið og verið dugleg að kommenat það er alltaf svo gaman. Verð svo að fara að henda inn smá fréttabloggi fljótlega </description>
Nýjar myndir
      <description>Fuu  Það er komið fullt af nýjum sumarmyndum :)Sumarkveðjur </description>
Ótitlað
      <description> Afmælisbarn Fjölskyldufaðirinn á afmæli í dag. Til hamingju með daginn elsku Kári okkar.Fullt af knúsum og kossum til þín frá okkurElskum þig mest....Ásdís, Lísa Katrín og Alexander Óli</description>
Afmælisbarn
      <description>Elsku Lísa Katrín okkar, til hamingju með 4 ára afmælið. Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún Lísa Katrín, hún á afmæli í dag.Milljón knús og kossar til þín elsku gullið okkar. Hlökkum til að knúsa þig og kyssa á eftir.Pabbi, Ásdís og Alexander Óli</description>
Sumarið er komið
      <description>Nýjar myndir Endilega kíkið á nýju sumarmyndirnar</description>
Ólafsfjörður
      <description>Sæl og blessuð :)Við litla fjölskyldan skelltum okkur norður í fjörðinn fagra um hvítasunnu-helgina. Gistum hjá Guðný Stórfrænku og höfðum það alveg rosa gott, enda er stórfrænkan alveg æðislegur gegstjafi. Við borðuðum góðann mat, slöppuðum af, busluðum í heita pottinum og höfðum það rosa gott. Það er enn snjór fyrir norðan en við vorum mjög heppin með veður, bong og blíða á laugardaginn og sunnudaginn. Svo vorum við svo heppin að hún Ólína okkar átti afmæli á sunnudaginn og það var sko engin smá veisla sem við lentum í þar. Æðislegar kökur og alltaf jafn gaman að hitta fjölskylduna. Við tókum nokkrar myndir og ég er búin að setja þær inn á síðuna, endilega skoðið og skilkið eftir komment, okkur finnst svo gaman að skoða þau :)</description>
nýjar myndir
      <description>Hæ hæ og hó.Var að setja inn nýjar myndir endilega kíkið á þær</description>
Páskarnir
      <description>Hæ hæ og gleðilega páskaAf okkur er allt gott að frétta. Páskarnir voru alveg frábærir. Á föstudaginn langa fórum við upp í bústað með Huldu, Nadíu Sól og Elenu. Við vorum þar í 2 nætur og slöppuðum sko vel af. Fórum í sund á Selfossi og það fannst Alexander Óla sko alveg æðislegt enda er hann algjöf sundkappi  Annars gengur lífið bara sinn vanagang. Alexander er alltaf jafn duglegur að labba, er næstum því farinn að hlaupa um. Hann er kominn með 3 tennur og það eru fleiri á leiðinni. Hann er alltaf jafn hress og kátur og gengur alveg rosalega vel hjá dagmömmunni. Það nýjasta núna er að kissa alla og knúsa og það vekur alltaf mikla lukku. Um daginn labbaði hann á milli sófans og eldhúsborðsin til að kissa mömmu sína og pabba til skiptis. Hann er svo mikill gullmoli að við foreldrarnir eigum stundum ekki orð yfir því. Endilega kíkið á allar nýju myndirnar</description>
alveg ótrlúlegt
      <description>Já eins og maður hefur nú oft nefnt hér á síðunni þá er það alveg ótrúlegt hvað tíminn líður hratt! Datt í það í gær að skoða gamlar myndir af litla prinsinum og það hafa sko heldur betur orðið breytingar á honum. Hann var svo lítill og fíngerður, með dökka húð og dökkt hár. Nú er hann ljóshærður, lítil bolla með bara svona normal húðlit, labbar um allt og babblar og babblar. Ótrúlega gaman að fylgjast með öllum þessum breytingum.6 vikna kútur6 mánaða kútur1 árs kútur Já þarna sést smá breyting á milli mynda. Annars höfum við haft það alveg rosalega gott, við Kári skelltum okkur í helgarferð til Glasgow sem var alveg æðislegt. Alexander var í pössun hjá ömmu og afa í Suðurásnum og fannst það sko ekki leiðinlegt. Þegar við komum heim var hann búinn að taka fyrstu skrefin og kominn með fyrstu tönnina sína. Hann ákvað sko að bíða með þetta þar til við værum ekki viðstödd, hehe. Núna er hann farinn að labba út um allt og er ekkert smá duglegur, verður farinn að hlaupa út um allt áður en maður veit af. Svo er farið ég farin að finna fyrir 3 nýjum tönnum. Það gerist bara allt í einu hjá þessari elsku.En jæja, nóg af fréttum í bili, endilega kíkið á albúmið því ég var að setja inn myndir frá 1 árs afmælinu</description>
Afmælisbarn 
      <description> Elsku besti litli strákurinn okkar á afmæli í dag!! Já hann Alexander Óli er orðinn 1 árs. Alveg ótrúlegt hvað tíminn líður hratt, litli gullmolinn okkar bara stækkar og stækkar. Við fórum með hann í 1 árs skoðun í vikunni og þau voru ekkert smá ánægð með hann. Hann er orðinn 79,6cm og 11,8 kg! Stór og stæðilegur strákur eins og hjúkkan orðaði það Jæja best að halda áfram að baka, set inn betri bloggfærslu eftir helgi og fullt af myndum</description>
Afmælisbarn
      <description>Elsku besti Frosti okkar á áfmæli í dagTil hamingju með 2 ára afmælið elsku Frosti, vonum að þú hafir það alveg rosalega gott í dag. Takk fyrir gærdaginn, við skemmtum okkur ekkert smá velKveðja Ásdís, Kári, Lísa Katrín og Alexander Óli</description>
Fréttir
      <description>Halló allirJæja ég held að það sé sko kominn tími á fréttir frá okkur. Lífið gengur bara rosa vel þessa dagana, ég er farin að vinna og er komin aftur til Eddu útgáfu. Er þjónustufulltrúi í bókaklúbbunum og ég verð að segja að það er alveg frábært að vera komin aftur. Kári hefur nóg að gera í sinni vinnu. Núna er hann staddur á Höfn að vinna með bróðir sínum, í næstu viku eru þeir svo á leiðinni til London og þá rætist sko draumurinn hans Kára um að fara á Liverpool leik,þeir ætla að fara að sjá Westham-LiverpoolAlexander Óli er alvegæðislegur, hann vex og dafnar þessi elska með hverjum deginum. Við erum búin að vera heima í gær og í dag af því að litli guttinn nældi sér í einhverja hitapest. Hann er samt alltaf svo hress og kátur að það er varla að sjá að hann sér lasinn. Dagmamman er alltaf að tala um hvað hann sé lífsglaður og ég held að það séu sko allir sammála henni, hann er alltaf brosandi og er rosalega geðgóður. Við foreldrarnir erum sko ekkert smá ánægð með hann. Í næsta mánuði verður hann svo eins árs!!!! Já það er ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Það er rosalegur kraftur í honum, hann labbar meðfram öllu (meira segja veggjunum) og ég held að það sé nú ekki langt í að hann fari að sleppa og labba sjálfur. Stundum sleppir hann og stendur alveg ein en það er eins og að um leið og hann fattar að hann heldur ekki í neitt þá dettur hann, algjör kjáni. En jæja, ég læt þetta duga í bili, setti inn nokkrar nýjar myndir sem þið verðið að kíkja áÞessar eru sko í miklu uppáhaldi </description>
nýtt ár
      <description> Gleðilegt nýtt ár Var að setja inn nýjar myndir, endilega skoðið og verið dugleg að kommenta, það er alltaf svo gaman</description>
jólastuð
      <description>Hæ hæ og hóJæja þá eru jólin að klárast. Við erum sko búin að hafa það alveg rosalega gott. Fengum fullt af frábærum gjöfum, borðuðum rosa góðann mat og erum bara búin að eiga æðisleg jól. Henti inn fullt af myndum og vona að flestir kíki á þær, set inn meiri fréttir seinna :)</description>
Jólin
      <description>Gleðileg jól og farsæltkomandi nýtt ár.Við vonum að þið hafið það sem allra best yfir hátíðarnar JólakveðjurÁsdísKáriLísa Katrínog Alexander Óli</description>
Jólin eru að koma 
      <description>Alveg ótrúlegt hvað tíminn líður hratt, það er bara rétt rúm vika í jólin!! Við erum nú bara róleg yfir þessu öllu saman, erum búin með flestar jólagjafirnar og svona. En annars er bara allt gott að frétta héðan úr Klapparhlíðinni. Alexander Óli stækkar bara og stækkar, hann er orðinn svo duglegur, labbar með öllu, er farinn að dansa við tónlist og svo talar hann og talar (að vísu skilst ekkert hvað hann er að segja en það er aukaatriði ) Það er alveg ótrúlega gaman að fylgjast með honum þessa dagana, hann er svo kátur og glaður alltaf, hann unir sér rosalega vel hjá dagmömmunni og við gætum ekki verið heppnari með það. Á miðvikudaginn eru við svo að fara í tíu mánaða skoðun en hann er einmitt tíu mánaða í dag!! Hlakka rosa mikið til að sjá hvað hann er orðinn langur því það hefur sko heldur betur tognaðu úr honum. hehe litli töffarinnEndilega kíkið á allar nýju myndirnarJólakveðjur frá okkur öllum</description>
prinsessan er komin
      <description>Elsku Ragnheiður okkarTil hamingju með litla gullmolann þinn, hún er alveg yndislegRagga vinkona okkar eignaðist litla stelpu sunnudaginn 02. desember. Hún var 16 merkur og 53 cm þegar hún fæddist. Nú er hún búin að fá nafn og heitir hún Margrét Valentína Diego. Við Kári kíktum á þær mæðgur í gær og áttu bæði erfitt með að trúa því að Alexander Óli hafi einhvertíman verið svona lítill og hvað þá að hann hafi verið minni og léttari. Auðvita var myndavélin með í för en þar sem litla dúllan svaf svo vært í fanginu á mér þá voru ekki teknar margar myndir, gerum það bara næst      Jæja þá er þetta komið í bili, lofa að taka fleiri myndir næst</description>
Myndataka
      <description>Í byrjun okt fórum við með Lísu Katrínu og Alexander Óla í myndatöku hjá Barna og fjölskylduljósmyndum. Það var rosa gaman, Lísa er sko algjör fyrirsæta en hann Alexander var hálf hissa á þessu öllu eins og sést á nokkrum, ja ef ekki flestum myndunum  Endilega kíkið á afraksturinn, setti allar myndirnar inn </description>
      <description>Var að setja inn nokkrar nýjar myndir frá því að við fórum í heimsókn til Lísu og Elfu, endilega kíkið </description>
Fleiri myndir
      <description>Hæ hæJæja ég var að skella inn nokkrum myndum í viðbót og er svo að vinna í að setja inn tvö myndbönd Endilega kíkið á þetta allt saman </description>
      <description> Halló allir Jæja loksins eru komnar inn nýjar myndir!! Við erum sko ekki búin að vera nógu dugleg í þessum málum. En annars gengur allt sinn vanagang hér í Klapparhlíðinni. Alexander er rosalega ánægður hjá henni Sigrúnu dagmömmu og hún er alltaf að tala um hvað hann er duglegur og góður Þegar við komum til hennar á morgnanna þá réttir minn maður bara út hendurnar og vill fara til hennar, segir svo namm namm sem þýðir að hann er tilbúinn í morgunmat...hehe. Á þriðjudaginn skreið minn maður svo inn í eldhús hjá henni Sigrúnu, opnaði skáp og náði sér í eitt stykki kexpakka!! já það er óhætt að segja að hann geti bjargað sér sjálfur þessi elskaÍ síðasta mánuði fórum við í átta mánaða skoðun. Alexander Óli er orðinn 10,5 kg og 74 cm!! Ljósmóðirin var rosalega ánægð með hann, enda brosti hann bara og spjallaði við hana allan tímann. Það er ekkert smá gaman að fylgjast með þessum litla stubb, hann er farin að læra svo margt. Hann er farinn að tosa sig upp við allt, er reyndar alltaf á hnjánum núna en við foreldrarnir höldum að það sé nú ekki langt í að hann fari að standa upp við hluti. Svo fyrir nokkrum dögum tók hann upp á því að blikka alla, ég held að hann fatti alveg hvað fólk hefur gaman að þessu því ef maður fer að hlægja gerir hann þetta aftur og aftur. Hann blikkar að vísu alltaf báðum augu í einu en það er það sem gerir þetta svo ótrúlega sætt Svo er hann farinn að læra að henda matnum sínum í gólfið, lærir það sko af krökkunum hjá dagmömmunni. Mömmunni á heimilinu finnst þetta alls ekki eins skemmtilegt og blikkið, en þetta fylgir nú bara þessum blessuðu börnum En jæja þá er þetta komið í bili, endilega  kíkið á myndirnar og verið dugleg að kommenta, það er svo gaman </description>
Síðasti sundtíminn
      <description>Hæ hæUm daginn var síðasti tíminn okkar í ungbarnasundi og þá fengum við lánaða vatnshelda myndavél hjá honum Snorra sundkennara. Við tókum fullt af myndum, bæði í kafi og ekki, af því að tæknin er orðin svo sniðug í dag þá fengum við myndirnar úr framköllun og svo geisladisk með svo við gætum nú sett þær inn á síðuna. Endilega kíkið á þær og ekki hika við að spyrja okkur um passwordið á albúminu ef þið eruð ekki með það</description>
Byrjaður hjá dagmömmu!!!
      <description>Hæ hæJæja þá erum við búin að skella inn nokkrum nýjum myndum og einu myndbandi. Endilega kíkið á þettaAnnars er bara allt gott að frétta af okkur hér í Klapparhlíðinni. Alexander Óli stækkar með hverjum deginum og það er svo gaman að fylgjast með honum. Hann er farinn að setja hendurnar upp í loft þegar maður spyr hann hvað hann er stór og ég er alveg viss um að hann fari að skríða bráðlega. Við byrjuðum í aðlögun hjá Sigrúnu dagmömmu í gær og Alexander finnst sko ekkert smá gaman. Við vorum svo ótrúlega heppin að það losnaði allt í einu pláss hjá dagmömmunni sem hann Frosti er hjá svo nú fá þeir frændurnir að vera saman á daginn sem okkur foreldrunum finnst auðvita alveg æðislegt. Frosti var auðvita svolítið hissa að sjá okkur hjá dagmömmunni hans en ég held að þetta venjist fljótt og ég er viss um að Frosti verður sko farinn að passa vel upp á litla frænda sinn hann Adiddi eins og hann kallar hann Alexander er mjög hissa á öllu dótinu og látunum í krökkunum en honum finnst þetta allt saman rosalega spennandi og ég held að hann eigi sko eftir að una sér vel þarna. Á morgun er fyrsti dagurinn sem ég á að skilja hann eftir, það er að vísu bara í 30 mín-klukkutíma en ég verð að viðurkenna að ég er smá stressuð, held að þetta eigi eftir að vera aðeins erfiðara fyrir mig heldur en hann þar sem hann tók ekkert eftir því að ég var með honum í dag!! hehe En jæja nóg af fréttum í bili...ætla að reyna að skella inn öðru myndbandi sem fyrstTilbúinn í slaginn ef það fer að rigna :)</description>
Myndbönd
      <description>Hæ hæVar að setja inn tvö video af alexander, endilega kíkið, þau eru hérna til hliðar undir myndböndum </description>
Fréttir
      <description>Hæ hæJá það eru sko komnar fréttir síðan síðast. Alexander Óli er að fara að byrja hjá Dagmömmu!!! Já það er rétt, litli strákurinn okkar er að fara til dagmömmu. Hann byrjar mánudaginn 1. okt í aðlögun sem tekur nokkra daga, fyrsta mánuðinn verður hann bara hálfann daginn þar sem mamman á heimilinu tímir ekki að sleppa honum alveg frá sér svona lengi í einu. Ég er að fara í skóla í janúar, ætla að skella mér í Menntaskólann við Hraðbraut og klára stúdentinn  Svo það verður svaka partý í júlí 2009!!(útskrifarveisla) hehe.....En dagmamman heitir Erla Brynja og býr hér í mosó, ástæðan fyrir því að hann byrjar svona snemma er að við viljum að hann sé orðinn vanur að vera hjá henni þegar ég fer í skólann, betra að byrja bara hægt og rólega í þessu þar sem við höfum tækifæri til þess. Ég verð nú reyndar að viðurkenna að þetta á eftir að vera miklu erfiðara fyrir mig heldur en hann þar sem hann er svo mikil félagsvera og elskar að vera í kringum börn, svo aðlögunin verður líklega erfiðari fyrir mömmuna en barnið.....heheEn annars er allt gott að frétta af okkur, Alexander bara vex og dafnar og það er svo gaman að fylgjast með honum uppgvöta heiminn smá saman, hann er svo duglegur, farinn að sytja og skríða, reyndar togar hann sig ennþá áframm á höndunum en hann er líka farinn að fara upp á hnéin og rugga sér aðeins, horfir svo á mann og skilur ekkert í því af hverju hann kemst ekki áframm.En jæja nóg af fréttum í biliEndilega kíkið á allr myndirnar sem ég var að setja inn, tvö ný albúm </description>
Myndir
      <description>Hæ hæ og hóÉg var að skella inn nokkrum nýjum myndum, endilega kíkið á þær og þið sem vitið ekki passwordið ekki hika við að senda okkur póst :)Bestu Kveðjur frá okkur hér í Klapparhlíðinni  </description>
Sjáið hvað ég stækka 
      <description>Hæ hæhér kemur smá myndasería sem sýnir ykkur hvað hann Alexander Óli hefur stækkað  síðan hann fæddist.Nýfæddur gutti. 3,3 kg og 49 cm1 mánaða - c.a 3,5 kg og 53 cm2.mánaða c.a. 4,3 kg og 57 cm3. mánaða c.a 5,5 kg og 61 cm4.mánaða c.a 6,4 kg og 64 cm5.mánaða c.a 7,9 kg og 68 cm6.mánaða c.a 9,4 kg og 72 cmJæja þá er það komið, ég á stundum erfitt með að trúa því hvað strákurinn okkar stækkar hratt, finnst hann stundum stækka OF hratt. Maður sér hann þroskast og dafna með hverjum deiginum og hann er alltaf að gera nýja hluti. Núna er hann farinn að sytja, gleymir sér reyndar svoldið við það og dettur til hliðana en þetta er allt að koma. Hann talar mjög mikið, eða réttara sagt gefur frá sér fullt af mismunandi hljóðum og það er alveg ótrúlega gaman að fylgjast með honum þegar hann uppgvötar eitthvað nýtt hljóð sem hann getur gefið frá sér. Svo verð ég auðvita að monta mig af því að hann er farinn að segja MAMMA, segir það hátt og skírt alla daga, segir líka amma en við bíðum enn eftir að heyra pabbi og afi, það hafa að vísu komið nokkuð líkar útgáfur af þeim orðum en ekkert sem hægt er að taka almenilega mark á. Það eru ekki komnar neinar tennur ennþá en þetta er allt að koma :)Jæja nóg af fréttum í bili....set inn myndir fljótlega</description>
6. mánaða
      <description>Hæ hæJæja haldið ekki bara að Alexander Óli sé orðinn 6 mánaða!! Mér finnst eins og hann hafi fæðst í gær. Við fórum með hann í 6 mánaða skoðun í síðustu viku og strákurinn okkar er orðinn 9,4 kg og 72 cm sem þýður að hann braggast alveg rosalega vel.Það nýjasta hjá Alexander er að hann er farinn að "skríða" út um allt, hann er að vísu ekki farinn að fatta að fara upp á hnén heldur tosar hann sig bara áfram og rúllar sér á milli en hann kemst allavega þangað sem hann ætlar sér að fara. Það eru ennþá engar tennur farnar að sjást en það er ekki langt í þær.En jæja sá stutti er farinn að kalla úr vagninum, endilega kíkið á nýju myndirnar og ekki hika við að senda okkur póst ef þið vitið ekki lykilorðið</description>
Læsing
      <description>Hæ hævildi bara láta vita að við læstum myndaalbúminu. Lykilorðið er fótboltaliðið sem Kári heldur með, ef þið vitið ekki hvað það er þá megið þið bara endilega senda okkur línu og við sendum ykkur lykilorðið. Fer svo að skella inn nýjum myndum og fréttum </description>
Afmælisbarn
      <description>Pabbinn á heimilinu á afmæli í dag  Já elsku besti Kári okkar, til hamingju með afmæliðKnús og kossar Ásdís og Alexander Óli</description>
Dugnaður
      <description>Já það er sko heldur betur dugnaður í mér núna, var að henda inn fullt af nýjum myndum, endilega kíkið á þær :)</description>
Hláturskast
      <description>Þið bara verðið að horfa á þetta :)http://www.youtube.com/watch?v=rbPa51i9_TYer hann ekki sætastur??</description>
5 mánaða gutti
      <description>Hæ hæ og hallóJá það er sko margt búið að gerast síðustu daga. Fórum í 5 mánaða skoðun í síðustu viku og það var sko bara rosa gaman. Alexander stækkar ekkert smá þessa dagana er orðinn 68 cm og 7,9 kg!!!! Sem þýðir að hann þyngdist umm 1,5 kg á 4 vikum, geri aðrir betur Brynja ljósmóðir var rosalega ánægð með hann og sagði að hannn væri bara alveg fullkominn. Mömmunni á heimilinu kveið svoldið fyrir þessari skoðun því það átti að sprauta hann en Alexander er svo sterkur strákur að það kom ekki einu sinni skeifa þegar hann var sprautaður!! Við erum á fullu í ungbarnasundi núna og það gengur rosalega vel. Mætum til hans Snorra tvisvar í viku og gerum fullt af æfingum, við foreldrarnir höfum líka alveg jafn gaman af þessu og sá stutti. Maður tekur strax eftir því hvað sundið hefur góð áhrif á hann, hann er að styrkjast rosalega vel á þessu og er næstum farinn að sytja sjálfur. Hann er farinn að velta sér og rúllar í hringi hérna á leikteppinu sínu, með smá ferðum út á gólfið en það fylgir víst aldrinum.Jæja hef þetta ekki lengra í bili, endilega kíkið á allar nýju myndirnar Bestu kveðjur úr Klapparhlíðinni</description>
Ungbarnasund
      <description>Hæ hæJæja þá eru við loksins byrjuð í ungbarnasundi. Við fórum í sundlaugina hérna á Skálatúni, hún er nú bara nánast úti í garði hjá okkur þetta er svo nálægt. Fyrsti tíminn gekk rosalega vel og Alexander stóð sig eins og hetja. Snorri sagði að hann væri sko alver rosa klár miðað við að þetta var fyrsti tíminn hans  Kári komst því miður ekki með okkur, þurfti að vinna en hún Anna Lilja kom í staðin. Hún var ekkert smá dugleg að taka myndir af okkur, endilega kíkið á þær og haldið áfram að vera svona dugleg að kommenta</description>
Komin heim
      <description>Halló hallóJá við erum komin heim, sem er bara nokkuð gott. Við höfðum það alveg rosa gott fyrir norðan og það var alveg yndislegt að hitta alla. Guðný stórfrænka og Ægir fá auðvita alveg sérstakt knús frá okkur fyrir gistinguna En við náðum að slappa rosa vel af, Kári fór í golf og svo kíktu við auðvita inn á Akureyri. Við tókum auðvita alveg helling af myndum, endilega kíkið á þær</description>
Fjölskyldan í frí :)
      <description>Hæ og hóJá við litla fjölskyldan erum á leiðinn í smá frí, ætlum að skella okkur norður til Ólafsfjarðar og slappa af þar. Það er sko kominn spenningur í okkur foreldrana, hitta alla þessu frábæru ættingja sem ég á þarna fyrir norðan og svo bara að komast í fjörðinn okkar, manni líður alltaf svo vel þar og kemur endurnærður til baka Á leiðinni norður ætlum við svo auðvita að stoppa hjá henni Sigrúnu sætu í sveitinni hennar, maður hálf skammast sín að vera ekkert búin að heimsækja hana.En annars er bara allt gott að frétta af okkur, Alexander er alltaf jafn æðislegur og dafnar vel, maður sér hann stækka og þroskast með hverjum deginnum. Loksins fannst snuð sem hann vill taka og er bara orðinn algjör snuddukall sem við erum bara nokkuð ánægð með Ég skellti inn nokkrum myndum sem þið megið endilega skoðaEn jæja við skellum inn myndum þegar við komum heim úr fríinu, ætlum sko að reyna að vera dugleg að taka myndir fyrir norðan</description>
Strax meira
      <description>Já nú eru þið hissa!! hehe....ákvað bara að skella inn nýjum myndum. Lísa var hjá okkur á laugardaginn og sunnudaginn og það var tekið svoldið mikið af myndum og auðvita var best að skella þeim bara beint á netið Endilega kíkið á myndirnar og haldið áfram að vera svona dugleg að kommenta, það er svo gaman að lesa það sem þið hafið að segja</description>